Smari Kopavogur
Hlioarsmari 13 Kopavogur, 201, Iceland
Travel Blogs Nearby
Takk fyrir að fylgjast með!
Eftir snilldar pökkun hjá mér og Ernu á öllu dótinu, jólagjöfum og öðrum nauðsynjavörum frá Ameríku var loksins komið að því að halda heim á leið. Hjalti skutlaði mér út á flugvöll og var ferðin heim fremur viðburðarlítil, flugið gekk vel, 7 klst og 15 min frá Seattle til Keflavíkur, fengum meira að segja smá meðvind.
Mamma og Elín komu að sækja mig á flugvöllinn og það var alveg yndislegt að sjá ...
Stóri dagurinn!
Eftir brjálaða niðurtalningu, talsvert mikið skipulag og einstaklega skemmtilegan undirbúning er loksins komið að stóra deginum, en ég flýg til London núna seinnipartinn :)
Mig langar að þakka öllum sem hafa sent mér góðar ferðakveðjur og heillaóskir og ég lofa að fara varlega, skemmta mér hrikalega vel og ...
4 dagar 22 klst!
Þó ég sé nú eiginlega alveg komin með nóg af þessum undirbúningsfærslum þá kemur hérna ein í viðbót!
Ég stóð nefnilega við það að prufupakka! Það gekk ótrúlega vel, náði leikandi að setja allt í bakpokann og hann varð ekkert of þungur, um 13 kg með handfarangri en þó þannig að það var ekki alveg allt komið í hann, kannski um 90% af dótinu eða svo! Verður gaman að sjá muninn á fimmtudaginn þegar ég pakka í alvöru :D
Svo er ég komin með alþjóðlegt ...
Þúsund mílna ferðalag hefst með einu skrefi
Jæja, hér kemur önnur undirbúningsfærsla :) Ég las um daginn spakmæli dagsins að þúsund mílna ferðalag hefjist með einu skrefi. Mér fannst vissulega mikið til í því og fór að leiða hugann að því að fyrir mér hefst ferðalagið líka að miklum hluta til með þeim undirbúningi sem ég tek mér fyrir hendur! Nú styttist óðum í ferðalagið mikla, enda eru bara 27 dagar í brottför! Verkefni helgarinnar er að taka saman lista yfir allt sem þarf að taka ...
Að pakka er ekki góð skemmtun
... eftir að vera forvitnilegt hvernig rætist úr því :)
Planið núna er að fljúga út núna 2 ágúst til London og svo þaðan til Úganda. Ég verð að vinna í 6 mánuði og svo ætla ég að ferðast eitthvað um Afríku í 2 vikur.
Mesti hausverkurinn núna er að koma því litla sem ég ætla að taka með mér fyrir í bakpokanum...sé fram á að ég þurfi að kaupa mér stærri bakpoka á morgun :) Icelandair voru svo góðir ...



